Skilmálar
Heill Heilsu ehf.
Kt: 620322-0830
Heiðarholt 11, 230 Reykjanesbær
s: 618-1111
jonoddur@jonoddur.is
EFTIRFARANDI SKILMÁLAR GILDA UM HEIMSÓKN ÞÍNA Á VEFSÍÐUNA OG ÖLL VIÐSKIPTI SEM ÞÚ KANNT AÐ GERA UM VEFSÍÐUNA, NÚ EÐA SÍÐAR.
Réttur til að hætta við pantanir
Sportlab.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Efni á heimasíðu og námskeiðum / Höfundaréttur
Allt efni á heimasíðu Sportlab.is og allt efni á netnámskeiðum sem seljandi bíður upp á er í eigu seljanda. Kaupanda er óheimilt að afrita efnið eða að deila því áfram.
Einstaklingsaðgangur
Óheimilt er að deila vörum eða áskrift með öðrum sem hefur ekki greitt fyrir aðgang að tiltekinni vöru eða þjónustu. Þú kaupir aðgang fyrir þig eina/einan.
Greiðsluskylda kaupanda (iðkanda) í mánaðarlegri áskrift
Kaupandi sem skráir sig í mánaðarlega áskrift hjá Sportlab.is skuldbindur sig til að greiða mánaðarlega (á 30 daga fresti) fyrir námskeið. Kaupandi þarf sjálfur að segja upp áskrift ef hann vill ekki lengur hafa aðgang að vörunni eða þjónustunni sem hann keypti. Rukkun fyrir áskrift verður send þar til kaupandi segir henni upp.
Greiðsluskylda kaupanda (iðkanda) þegar keypt er stakt námskeið
Kaupandi sem kaupir stakt námskeið (eða aðra vöru) greiðir fyrirfram. Ef um netnámskeið er að ræða er ekki hægt að fara fram á endurgreiðslu eftir að greiðsla hefur verið innt af hendi.
Endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur ekki rétt á endurgreiðslu eftir að búið er að greiða áskriftargjald eða stakt námskeiðsgjald, enda er alltaf greitt fyrirfram fyrir verðmæti sem kaupandi fær. Endurgreiðsluréttur stofnast ekki ef þáttakandi hefur ekki nýtt sér vöruna eða þjónustuna sem keypt var.
Uppsögn á áskrift
Kaupandi getur sagt upp áskrift að vöru eða þjónustu á meðlimasvæði á heimasíðu Sportlab.is: www.sportlab.is Uppsögn tekur strax gildi sem þýðir að iðkandi fær ekki annan reikning og hann missir þá um leið aðgang að vöru eða þjónustu sem verið er að segja upp.
Verð
Vinsamlegast athugið að verð geta breyst án fyrirvara. Ef áskriftargjald (mánaðarlegar áskriftir) hækkar mun Sportlab.is senda tilkynningu þar um og taka verðbreytingar þá gildi frá og með næstu mánaðarmótum.
Eigin ábyrgð
Athugaðu að kaupandi ber ábyrgð á framkvæmd og niðurstöðu af vörum eða þjónustu frá Sportlab.is. Kaupandi ber ábyrgð á eigin heilsu og verður að treysta sér til að framkvæma æfingar eða til að nýta aðra þjónustu sem hann fær hjá Sportlab.is. Við hvetjum kaupanda til að hlusta á eigin líkama og verður ávallt að huga að eigin getu þegar tekin er ákvörðun um að kaupa og nýta sér þjónustu hjá Sportlab.is. Ef um meiðsli eða önnur veikindi er að ræða hvetjum við iðkanda til að ráðfæra sig við sérfræðing áður en keypt er þjónustu hjá Sportlab.is.
Með kaupum á vöru eða þjónustu hjá Sportlab.is staðfestir kaupandi að hann beri þessa ábyrgð (eigin áhættu).
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Sportlab.is. á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.
Breytingar
Sportlab.is áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum sínum. Breytingarnar taka gildi þegar uppfærðir skilmálar hafa verið birtir hér á heimasíðunni.