Um Sportlab

Sportlab er staðsett í Reebok Fitness í Faxafeni 14. Þrátt fyrir að fyrirtækið sé ungt, þá er áratuga reynsla að baki, þjálfunar einstaklinga á öllum aldri og með mjög mismunandi markmið.

Jón Oddur Guðmundsson

Jón Oddur Guðmundsson er stofnandi Sportlab, hann er með áratuga reynslu af þjálfun við ýmiskonar hreyfingu, allt frá styrktarþjálfun einstaklinga yfir í þjálfun fyrir lengri þolíþróttir eins og Ironman. Síðustu 15 árin hefur hann varið mestum tíma í þolíþróttum eins og hjólreiðum, hlaupum og þríþraut. Á þessum tíma hefur hann tekið að sér sérvalda einstaklinga í einkaþjálfun bæði hérlendis og erlendis. En hann er einnig þjálfari hjá hinu virta þjálfunarfyrirtæki Peaks Coaching Group.

Jón Oddur er með meistaragráðu í Exercise Science and Coaching frá Háskólanum í Reykjavík, og meistaraverkeni hans snérist um öndunartíðni og öndunarmagn í áhuga hjólreiðafólki og hlaupurum.

  • Peaks Coaching Group Elite Coach
  • Certified Cycling Power Coach
  • Certified Ironman University Coach
  • UCI cycling Level 1 Coach
  • Certified BikeFit Level 1
  • WADA – ADEL for High Performance Coaches