HEILDARMAT
Heildarmat er sambland af grunnbrennslumati og þolmati. Þar sem hugsunin er að ná heildarmati í einni heimsókn.
Grunnbrennslumat eða RMR (resting metabolic rate) er mat þar sem grunnbrennsla líkamanns er mæld, hún er einnig kölluð dagleg kalóríþörf líkamanns. Grunnbrennslumatið er þægilegt 20 mínútna mat, þar sem þú einfaldlega hallar þér aftur og nýtur þess að slaka þægilega á. Við grunnbrennslumatið ert þú með sérstaka grunnbrennslu öndunargrímu sem mælir súrefni og koltvísýring í bæði innöndun og útöndun, auk þess að mæla tíðni öndunar og það magn af andrúmslofti sem þú andar bæði að þér og frá.
Þolmatið er síðan er álagsaukandi mæling í þeirri hreyfingu sem þú kýst að stunda, yfirleitt eru matið tekið á hlaupabretti eða æfingahjóli. Við þolmatið ert þú með öndunargrímu sem mælir súrefni og koltvísýring í bæði innöndun og útöndun, auk þess að mæla tíðni öndunar og það magn af andrúmslofti sem þú andar bæði að þér og frá.
Við viljum mæla hvern andardrátt til að fylgjast mjög vel með þeim breytingum sem eiga sér stað við álagsbreytingar.
ÞETTA ER INNIFALIÐ Í HEILDARMATI:
- Líkamsmælingar: Hæð, þyngd, fituprósenta, fitumassi, vöðvamassi
- Blóðþrýstingur
- Lungnarýmd
- Hámarks kraftur lungna
- Hvíldarpúls
- Grunnbrennslumæling, kalóríuþörf líkamanns á 24 klst
- Nýting næringarefna við daglega athafnir (kolvetni, prótein og fita)
- Þoltala VO₂ max (ml/min/kg)
- Mjólkursýruþröskuldar, VT1 og VT2 (neðri og eðri)
- Æfingasvæði (zones) út frá VO₂, hjartslætti, hraða eða vöttum
- Lungnanrýmd undir álagi
- Nýting næringarefna undir álagi (kolvetni, próten, fita)
- Hámarks hjartsláttur undir álagi
FYRIRKOMULAG ÞOLMATS
GOTT AÐ VITA FYRIR HEILDARMAT:
Æskilegt er að þú sért á fastandi alla vega 3 tíma fyrir þolmat, þó svo það sé ekki nauðsynlegt, þú verður spurð/ur hvort þú sért á fastandi eða ekki.
Mæta með þægileg æfingaföt fyrir viðkomandi hreyfingu, búnings- og sturtuaðstaða er hjá okkur þannig að það er óþarfi að mæta í æfingafötunum. Ekki er þörf á því að neyta koffindrykkja eða hlaða sig upp af kolvetnum fyrir þolmat og mælumst við gegn því.
HVERNIG FER GRUNNBRENNSLUMATIÐ FRAM?
Grunnbrennslumatið hefst líkamsmælingum, þar sem hæðar-, þyngdar- og ítarlegri fitu- og líkamshlutamælingu. Síðan er einfaldlega komið að 20 minúta afslöppun, þar sem þú færð sérhannaða öndunargrími fyrir grunnbrennslumælingar og eins og við minntumst á hér fyrir ofan, einfaldlega hallar þér aftur og slakar á i 20 mínútur.
HVERNIG FER ÞOLMATIÐ FRAM?
Þolmatið hefst líkamsmælingum, þar sem hæðar-, þyngdar- og ítarlegri fitu- og líkamshlutamælingu. Því næst er lungnamat (spirometry), þar sem ástand lungna er skoða, hámarks lungnarýmd og lungnakraftur eru mæld. Því næst er komið að þolmatinu sjálfu. Þú færð þægilega öndunargrímu og hefst með rólegri upphitun og er álag eða hraði aukinn á jafnt og þétt, allt frá 60 – 180sek fresti (mismunandi eftir einstaklingum). Álagið er aukið þangað til að þú telur þig ekki geta gert betur og sjálfviljug/ur hættir. Að þessu loknu biðjum við þig að vera kyrr í 2 – 3 mínútur til að skoða endurheimt líkamanns eftir þolmatið.
NIÐURSTÖÐUR
Úr þolmatinu færðu ítarlega skýrslu með helstu niðurstöðum þolmatsins, auk þess sem þú færð boð í eftirfylgni til að útskýra fyrir þér niðurstöðurnar á mannamáli. Hvernig þú getur nýtt þér þær til að hámarka árangur þinn eða ná markmiðum.