MJÓLKUR­SÝRU­MAT

Mjólkursýrumat er álagsaukandi mæling í þeirri hreyfingu sem þú kýst að stunda, yfirleitt eru matið tekið á hlaupabretti eða æfingahjóli. Við mjólkursýrumatið ert þú með öndunargrímu sem mælir súrefni og koltvísýring í bæði innöndun og útöndun, auk þess að mæla tíðni öndunar og það magn af andrúmslofti sem þú andar bæði að þér og frá. Að þessu viðbættu eru teknar mjólkursýrumælingar í lok hvers álagsþreps til að skoða magn mjólkursýru í blóði.

Í mjólkursýrumati eru álagsþrepin ívið lengri en í álagsmati en alltaf farið eftir viðurkenndum og þrautreyndum aðferðum.

ÞETTA ER INNIFALIÐ Í MJÓLKUR­SÝRU­MATI:

FYRIR­KOMULAG MJÓLKUR­SÝRU­MATS

GOTT AÐ VITA FYRIR MJÓLKURSÝRUMAT:
Æskilegt er að þú sért á fastandi alla vega 3 tíma fyrir mjólkursýrumat, þó svo það sé ekki nauðsynlegt, þú verður spurð/ur hvort þú sért á fastandi eða ekki.
Mæta með þægileg æfingaföt fyrir viðkomandi hreyfingu, búnings- og sturtuaðstaða er hjá okkur þannig að það er óþarfi að mæta í æfingafötunum. Ekki er þörf á því að neyta koffindrykkja eða hlaða sig upp af kolvetnum fyrir þolmat og mælumst við gegn því.

HVERNIG FER MJÓLKURSÝRUMATIÐ FRAM?
Mjólkursýrumatið hefst líkamsmælingum, þar sem hæðar-, þyngdar- og ítarlegri fitu- og líkamshlutamælingu. Því næst er lungnamat (spirometry), þar sem ástand lungna er skoða, hámarks lungnarýmd og lungnakraftur eru mæld. Því næst er komið að þolmatinu sjálfu. Þú færð þægilega öndunargrímu og hefst með rólegri upphitun og er álag eða hraði aukinn á jafnt og þétt, allt frá 60 – 180sek fresti (mismunandi eftir einstaklingum). Álagið er aukið þangað til að þú telur þig ekki geta gert betur og sjálfviljug/ur hættir. Að þessu loknu biðjum við þig að vera kyrr í 2 – 3 mínútur til að skoða endurheimt líkamanns eftir þolmatið.

NIÐURSTÖÐUR
Úr mjólkursýrumatinu færðu ítarlega skýrslu með helstu niðurstöðum mjólkursýrumatsins, auk þess sem þú færð boð í eftirfylgni til að útskýra fyrir þér niðurstöðurnar á mannamáli. Hvernig þú getur nýtt þér þær til að hámarka árangur þinn eða ná markmiðum.

BÓKAÐU TÍMA Í MJÓLKUR­SÝRUMAT

TIL AÐ NÁ ÞÍNUM BESTA ÁRANGRI!

kr. 39.950