GRUNN­BRENNSLU­MAT

Grunnbrennslumat eða RMR (resting metabolic rate) er mat þar sem grunnbrennsla líkamanns er mæld, hún er einnig kölluð dagleg kalóríþörf líkamanns. Grunnbrennslumatið er þægilegt 20 mínútna mat, þar sem þú einfaldlega hallar þér aftur og nýtur þess að slaka þægilega á.  Við grunnbrennslumatið ert þú með sérstaka grunnbrennslu öndunargrímu sem mælir súrefni og koltvísýring í bæði innöndun og útöndun, auk þess að mæla tíðni öndunar og það magn af andrúmslofti sem þú andar bæði að þér og frá.

Við viljum mæla hvern andardrátt til að fylgjast mjög vel með þeim breytingum sem eiga sér stað við álagsbreytingar.

ÞETTA ER INNI­FALIÐ Í GRUNN­BRENNSLU­MATI:

FYRIRKOMULAG GRUNN­BRENNSLU­MATS

Grunnbrennslumat er þægileg mæling, þar sem þú einfaldlega hallar þér aftur í hvíldarstól, dúðuð/aður inn í teppi og ert í núinu í 20 mínútur. 

Þar sem við mælum hvern andardrátt þá getur það verið erfitt fyrir suma að einbeita sér að því að slaka á, í stað þess að vera að spyrja spennandi spurning. Engar áhyggjur þú færð tíma til að spyrja þegar að mælingu er lokið.

GOTT AÐ VITA FYRIR GRUNNBRENNSLUMAT:
Æskilegt er að þú sért á fastandi alla vega 3 tíma fyrir grunnbrennslumatið, ef kaffið er heilagt í daglegri rútínu, þá skemmir einn bolli ekki fyrir, við erum að búa til meiri óróa í kerfinu með þvi að sleppa honum. Þar sem grunnbrennslumatinu fylgja engin átök, þá er ekki þörf á að mæta með æfingafötin, frekar en þú vilt. 

HVERNIG FER GRUNNBRENNSLUMATIÐ FRAM?
Grunnbrennslumatið hefst líkamsmælingum, þar sem hæðar-, þyngdar- og ítarlegri fitu- og líkamshlutamælingu. Síðan er einfaldlega komið að 20 minúta afslöppun, þar sem þú færð sérhannaða öndunargrími fyrir grunnbrennslumælingar og eins og við minntumst á hér fyrir ofan, einfaldlega hallar þér aftur og slakar á i 20 mínútur. 

NIÐURSTÖÐUR
Úr grunnbrennslumatinu færðu ítarlega skýrslu með helstu niðurstöðum þar sem heildarkalóríuþörf líkamans kemur fram auk skiptingar næringarefna, kolvetna próteina og fitu. Út frá þessum upplýsingum getur þú síðan betrumbætt þína næringarinntöku út frá daglegu lífi og/eða æfingum. 

BÓKAÐU TÍMA Í GRUNN­BRENNSLU­MAT

TIL AÐ NÁ TÖKUM Á STÖÐUGRI ORKU YFIR DAGINN

kr. 22.950